8. júní 2010 14:37

STYRKIR

 

Umsóknarfrestur um styrki Menningarráðs Vesturlands er til 18. jan 2010

 

Umsóknarferstur til að sækja um styrki til Menningarráðs Vesturlands rennur út mánudaginn 18. janúar.

Mikilvægt er fyrir umsækjendur að kynna sér vel umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og áherslur ársins 2010.

 


Fréttir frá Norrænu menningargáttinni:

 

Umsóknarfrestir fyrir vorið 2010

 

Búið er að birta umsóknarfresti vegna styrkja í Ferða og dvalarstyrkjaáætluninna,og menningar og listaáætlunina. Umsóknarfrestir eru nokkurnvegin þeir sömu og þeir voru árið 2009. Nú er opið fyrir styrki til dvalarsetra.

Nánar

 

Menningar og listaáætlunin opnar fyrir umsóknir frá áhugafólki


Áætlunin mun nú styðja við bakið á áhugafólki á sviði lista og menningar sem og fagfólki. Skilyrði fyrir styrkþega verða kynnt í byrjun febrúar.

Nánar

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Hönnunarmiðstöð, Listaháskóla Íslands,  Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ímark og Útflutningsráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku handverki og hönnunarvörum.   Heildarráðstöfunarfé er tíu milljónir króna, hámarksstyrkur er tvær milljónir króna, en þó aldrei hærri en 50% af heildarkostnaði.

Markmið:

Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvörum. Styrkjunum er ætlað að skapa aukin verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna. 

Þátttökurétt:

Hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (a.m.k. 50%) með lögheimili á starfssvæði* Byggðastofnunar.

Skilyrði:

Verk/vara verður að vera tilbúin til markaðssetningar erlendis og að framleiðsla verksins/vörunnar fari að hluta eða öllu leyti fram á Íslandi.

 

Við mat á umsóknum verður horft til eftirfarandi þátta: 

Að verk/vara sé vönduð og samkeppnishæf.  

Markaðsáætlun sé hnitmiðuð, raunhæf og vel skilgreind.          

Kostnaðar- og verkáætlun sé trúverðug og vel skilgreind.             

Möguleg framþróun.

Framkvæmd:           

Rýnihópur metur umsóknir og velur verk/vörur tíu umsækjenda.                

Vörurnar/verkin sem rýnihópurinn velur verða til sýnis dagana 18.-21. mars 2010.     

Dómnefnd velur a.m.k. fimm verk og fá eigendur þeirra fjárhagslegan og faglegan stuðning við að koma verkinu/vörunni  á markað erlendis.                       

Val dómnefndar verður tilkynnt 21. mars á lokadegi Hönnunarmars 2010.    

 

Umsóknum skal skilað rafrænt fyrir kl. 17:00 mánudaginn 1. febrúar 2010, umsóknareyðublað og leiðbeiningar eru á heimasíðu Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is

 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Elín Þórðardóttir í síma 455 5400 eða  sigridur@byggdastofnun.is

Mikilvægt er að senda vandaða umsókn og er umsækjendum bent á að hægt er að fá ráðgjöf hjá Byggðastofnun, atvinnuþróunar-félögunum og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.


Norske Kunsthåndverkeres stipend

til fremme av teoretiske studier innen kunsthåndverk

Stipendet kan søkes av masterstudenter innen

-kunsthistorie

-visuell kultur

-kunstkritikk- og kulturformidling

-kunstfag

på universitets-/høgskolenivå, eventuelt forskere som skal skrive PhD-avhandlinger eller andre forskningsprosjekter relatert til faget kunsthåndverk. Søker må ha fått godkjent sin prosjektbeskrivelse ved sin respektive utdanningsinstitusjon.

Formålet med stipendet: Å stimulere til forskning i kunsthåndverkets historie, teori og kritikk, både i samtid og fortid. Ellers står studenten fritt i valg av tema. Stipendet kan fra og med 2010 mottas av studenter fra alle de nordiske land, men oppgaven må skrives på norsk, svensk, dansk eller engelsk.

Stipendet er på inntil kr 50 000,- og tildeles av Norske Kunsthåndverkeres (NK) styre etter søknad. Søknadsfrist er 1.februar hvert år. Søknadsskjema finnes på iwww.kunsthandverk.no, og kan ellers fås ved henvendelse til Norske Kunsthåndverkere, Rådhusgaten 20, 0151 Oslo, ved formidlingskonsulent Synnøve Vik, e-post: synnove.vik@kunsthandverk.no, tlf. 22 91 02 68.

Norske Kunsthåndverkere (NK) kan etter nærmere avtale benytte hele eller deler av oppgaven.

Norske Kunsthåndverkere er en landsomfattende organisasjon for profesjonelle utøvere av faget kunsthåndverk. Organisasjonen ble etablert som fagorganisasjon i 1975.

For mer informasjon se www.kunsthandverk.no


Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir ferðastyrki

Frestur til að sækja um ferðastyrki frá Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum rennur út 1. febrúar næstkomandi. Styrkupphæðin er 7000 sænskar krónur.

Styrkurinn er veittur einstaklingum sem eiga í sænsk-íslenskum samskiptum  hvort sem þau byggja á grunni menningarmála, menntunar eða rannsókna. Umsækjendur þurfa að gera grein fyrir dagskrá ferðarinnar og veita upplýsingar um tengilið í hinu landinu.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.norden.se/island



HANDVERK OG HÖNNUN

Ferða-og verkefnasjóður HANDVERKS OG HÖNNUNAR

HANDVERK OG HÖNNUN styrkir starfandi handverks- og listiðnaðarfólk til að afla sér þekkingar í greininni, hérlendis eða erlendis. Hugmyndin er að koma til móts við einstaklinga vegna náms og/eða ferðakostnaðar.

 

Umsóknarfrestur fyrir árið 2009 er runninn út. 

 

HANDVERK OG HÖNNUN

Pósthólf 1556

121 Reykjavík


MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI

Listir- og önnur menningarmál

Menntamálaráðuneyti veitir styrki sem það ráðstafar á grundvelli umsókna til ýmissa verkefna á sviði menningarmála. Umsóknir verða afgreiddar í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember og er þá miðað við þær sem fyrirliggjandi eru við upphaf þessara mánaða.

Styrkir eru veittir til verkefna á sviði menningarmála sem falla ekki undir aðra sjóði eða fjárveitingar á vegum ríkisins.

Umsóknir skulu gerðar á umsóknareyðublöðum sem fást á vef menntamálaráðuneytis á umsóknarvef ráðuneytisins eða í móttöku þess að Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Umsókn skal m.a. innihalda upplýsingar um umsækjanda og aðra er að verkefninu koma, lýsingu á verkefninu og markmiðum þess, verk- og tímaáætlun, fjárhagsáætlun og upplýsingar um aðra styrki sem verkefnið hefur hlotið eða sótt hefur verið um. Ekki verða veittir styrkir til viðburða eða verkefna sem þegar hafa átt sér stað.

 

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má finna á vef menntamálaráðuneytisins

 


Listamannalaun / Starfslaun listamanna

Starfslaun listamanna eru veitt úr fjórum sjóðum: Launasjóði myndlistarmanna, Launasjóði rithöfunda, Tónskáldasjóði og Listasjóði.
Listasjóður veitir starfslaun og styrki er svara til 300 mánaðarlauna.
Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári (að hausti). Eyðublöð fást á skrifstofu og á vef stjórnar listamannalauna Umsóknum skal skila á skrifstofu stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.


FORSÆTISRÁÐUNEYTI

Grænlandssjóður

Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.

Umsóknum óskast beint til stjórnar Grænlandssjóðs og sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, IS-150 Reykjavík

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má finna á vef forsætisráðuneytisins


IÐNAÐARRÁÐUNEYTI

Styrkveitingar Iðnaðarráðuneytis undir merkjum Átaks til atvinnusköpunar
Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til tvennskonar verkefna:
- Verkefna sem eru á forstigi nýsköpunar og falla ekki undir verksvið annarra sem veita sambærilega fyrirgreiðslu. 
- Verkefna sem eru skilgreind sem sérstök átaksverkefni ráðuneytisins.
Sjá nánar hér
Frekari upplýsingar í síma 522- 9000 eða 522-9267 eða á hb@nmi.is


 

ÝMSIR MENNINGARSJÓÐIR 

 

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningahalds erlendis. Listamenn geta sótt um stærri styrki, að hámarki kr. 400 þúsund, fyrir umfangsmikil verkefni áætluð með lengri fyrirvara eða smærri styrki, að hámarki kr. 60 þúsund, vegna umfangsminni verkefna með skemmri fyrirvara. Á árinu 2009 veitir Kynningarmiðstöðin 3,6 milljónir króna til verkefna listamanna.

Umsókn að berast a.m.k. 40 dögum áður en verkefni hefst (s.s. opnun sýningar eða upphaf ferðar ).

Ef fleiri en einn listamaður sækja um vegna sama verkefnis er fagráðinu heimilt að fjalla um umsóknirnar sem eina. Að hámarki verða veittir tveir styrkir vegna sama verkefnis. 6 stærri styrkir verða veittir á árinu 2009.

Sjá nánar á hér.


 

Hlaðvarpinn, menningarsjóður kvenna á Íslandi

Hlaðvarpinn, er sjóður sem stofnaður er af hluthöfum Hlaðvarpans ehf. til styrktar menningarmálum kvenna á Íslandi. 
Markmið sjóðsins er að styrkja menningarstarfsemi kvenna sem beinist að því að greina, efla, varpa ljósi á og breyta stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Með menningarstarfsemi er átt við hvers kyns listir, rannsóknir og kynningu á menningu kvenna.
Listir, rannsóknir og kynning á menningu kvenna nær til skrifa, sjónlista, sýninga, tónleika, útgáfu, uppákoma, kvikmyndagerðar, þáttagerðar, námskeiða, ráðstefna og hátíða sem tengjast menningarmálum sem og annað það sem fellur að markmiðum sjóðsins. Rannsóknir geta náð til einstakra þátta í menningu kvenna, menningarviðburða, einstakra verka, félaga og einstaklinga sem lagt hafa mikilvægan skerf til menningar kvenna.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Hlaðvarpans:
www.hladvarpinn.is


 

Muggur

Muggur er sjóður sem Menningarmálanefnd Reykjavíkur, Samband íslenskra myndlistarmanna og Myndstef hafa stofnað og hefur Sambandi íslenskra myndlistarmanna verið falið að annast umsýslu hans. Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis. Með þeim hætti er sjóðnum ætlað að efla myndlistarstarf í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkurborgar sem framsækinnar menningarborgar á heimsvísu. Stofnun sjóðsins er liður í því að gera Reykjavíkurborg að vettvangi alþjóðlegra listastrauma.

Auglýst er eftir umsóknum til dvalar erlendis vegna:
myndlistarsýningar
vinnustofudvalar / þátttöku í verkstæði
annars myndlistarverkefnis

Sjá nánar á heimasíðu SÍM: www.sim.is/Index/Islenska/Hagnytt/Muggur


Ferðasjóður Muggs

Ferðasjóður Muggs er sjóður sem Samband íslenskra myndlistarmanna, Höfuðborgarstofa og Icelandair hafa stofnað til þess að styrkja ferðir myndlistarmanna sem eru fullgildir félagar í SÍM. Sömu skilyrði gilda um Ferðasjóð Muggs og Mugg, auk þess er skilyrði að verkefnið sé sýnilegt og að það geti að mati sjóðsstjórnar styrkt ímynd Reykjavíkur sem uppsprettu fyrir öflugt og framsækið myndlistarlíf.

Sjá nánar á heimasíðu SÍM: www.sim.is/Index/Islenska/Hagnytt/Muggur  

 


 

Menningarsjóður Landsbankans

Menningarsjóður Landsbankans starfar sjálfstætt innan bankans með sérstakri stjórn. Markmið sjóðsins er að styrkja með fjárframlögum verðug mannúðar-, mennta- og menningarmál um land allt. Áherslur Menningarsjóðsins á starfsárinu 2006 tengdust fyrst og fremst verkefnum í tilefni af 120 ára afmæli bankans.

Menningarsjóður Landsbankans hefur skilgreint eftirfarandi málaflokka vegna úthlutunar úr sjóðnum: Mannúðarmál, Menning og listir, Menntamál, rannsóknir og vísindi, Æskulýðsstarf, Saga, minjar og útgáfa, Forvarnarstarf, Umhverfismál.

 

Umsóknarfrestur í Menningarsjóðinn er tvisvar á ári.

Hægt er að sækja rafrænt um styrk úr Menningarsjóði Landsbankans hér.


 

Stuðningsverkefni SJÓVÁ 

Sjóvá veitir árlega styrki til aðila sem vinna að ýmsum góðum málefnum í þágu samfélagsins.

Megináhersla er lögð á að s

tyrkja verkefni sem hafa forvarnagildi og fer um helmingur styrktarfjárins til slíkra verkefna. Auk þess styrkir félagið ýmis góðgerðamál, íþrótta- og menningarstarf.

Opnað verður fyrir styrkbeiðnir fyrir árið 2009 þann 1. október nk.

Sjá nánar á heimasíðu Sjóvá


 

Menningarsjóður VISA

Stjórn VISA tók þá ákvörðun árið 1992 að stofna sérstakan Menningarsjóð, fyrst og fremst í þeim tilgangi að gera stuðning fyrirtækisins markvissari og beina honum í ákveðinn farveg.

Tilgangur sjóðsins er:
1. Að styðja íslenska menningu og listir
2. Að veita fé til líknar- og velferðarmála
3. Að efla verkmenntun, vísindi og tækni

 

Umsóknarfrestur í sjóðinn er til 31. desember ár hvert.

Umsóknum skal fylgja glögg og greinargóð lýsing á markmiði eða viðfangsefni, þó ekki meira en ein vélrituð síða að lengd. Prófskírteini, umsagnir eða önnur gögn eru frábeðin.

Nánari upplýsingar má finna hér.


 

SKELJUNGUR - styrkir

Skeljungur veitir styrki til samfélagslegra málefna á hverju ári. 

Innsendar styrkbeiðnir eru teknar fyrir mánaðarlega og svör gefin um hvort styrkur verður veittur eður ei. 

 

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu Skeljungs.


 

TM -  Tryggingarmiðstöðin

TM leggur ríka áherslu á verkefni sem tengjast forvörnum og hefur TM ekki að venju að styrkja einstaklinga, nemendur eða starfsmannafélög til náms, vegna íþrótta- og/eða utanlandsferða, kosningaherferðir nemenda og/eða stjórnmálaflokka.

Farið er yfir allar styrkbeiðnir á fundi markaðssviðs í byrjun hvers mánaðar. Öllum umsóknum er svarað.

 

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu TM.


Borgun

Auglýsinga- og styrktarbeiðnir

Borgun styður ötullega við margvísleg málefni í nafni MasterCard og annarra vörumerkja sem félagið hefur yfir að ráða.

Fundað er vegna styrktarbeiðna einu sinni í viku og er öllum beiðnum svarað í kjölfar þess.

 

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu Borgunar


 

Pokasjóður verslunarinnar 
Þann 1. janúar 2002 varð sú breyting á að nafni Umhverfissjóðs verslunarinnar var breytt í Pokasjóð verslunarinnar og um leið fékk sjóðurinn nýtt hlutverk. Pokasjóður úthlutar ekki eingöngu fé til umhverfismála heldur einnig til annarra verkefna sem heyra undir almannaheill. Má þar nefna verkefni eins og umhverfismál, menningu, listir, íþróttir og mannúðarmál.

Athugið að aðeins er hægt að sækja um á heimasíðu sjóðsins www.pokasjodur.is en þar má einnig finna allar upplýsingar um sjóðinn, fyrirkomulag og styrki.


 

Menningarsjóður VÍS

Hér gefst félagasamtökum, einstaklingum og fyrirtækjum færi á að senda okkur beiðni um hvers konar auglýsingar, styrkbeiðnir og/eða samstarfssamninga. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að vinna umsóknina eins nákvæmlega og kostur er.

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu VÍS


 

Smáverkefnasjóður landbúnaðarins
Smáverkefnasjóður landbúnaðarins var stofnaður í árslok 1990. Starfsfé hans kemur úr Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Tilgangur sjóðsins er að styðja við framtak og þær hugmyndir fólks í dreifbýli, sem leitt gætu til atvinnusköpunar t.d. á sviði handiðna eða minni framleiðslu- og/eða þjónustuverkefna.
Nánari upplýsingar:
www.bondi.is 
Bændasamtök Íslands - Bændahöllinni v/Hagatorg - Reykjavík


 

MENNINGARRÁÐ AUSTURLANDS
Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál, frá 14. maí 2001. Veita á styrki til eflingar menningarstarfs á Austurlandi.


Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrk til margvíslegra menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.
Umsóknum skal skila til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á skrifstofum sveitarfélaga og á heimasíðunni
www.menningarrad.is
Þar er einnig að finna úthlutunarreglur og ýmsar aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur.
Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi í síma 471 2990, 860 2983 eða með tölvupósti
menning@skriduklaustur.is 


 

MENNINGARRÁÐ VESTURLANDS

Menningarráð Vesturlands úthlutar fjármagni til menningarverkefna á grundvelli umsókna og gerir skriflega samninga um skyldur styrkhafa vegna þeirra verkefna sem hljóta styrk.

Taka skal m.a. mið af því að:

-   efla samstarf innan samstarfssvæða Vesturlands um menningarmál; 

-   efla menningartengda ferðaþjónustu á Vesturlandi og styðja sérstaklega við verkefni sem laðað geta að ferðamenn;

-   efla starfsemi á sviði sagnahefðar;

-   styðja við menningarhátíðir og viðburði í því skyni að auka menningarlega fjölbreytni;

-   auka stuðning við menningarstarf ungs og aldraðs fólks;

-   stofna til samstarfs við þjóðmenningarstofnanir;

-   efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu og menningartengdri ferðaþjónustu;

-   styðja við metnaðarfulla menningarstarfsemi sem er landsvæðinu til farsældar;

-   efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.

Hér er hægt að fylla út umsókn um styrk.


 

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er áhættufjárfestir sem tekur virkan þátt í þróun og vexti atvinnulífsins með því að fjárfesta í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. 

Nánari upplýsingar:

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins  www.nsa.is


 

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni.

Nánar um nýsköpunarsjóð námsmanna má sjá á www.rannis.is  


 

Byggðastofnun

Byggðastofnun veitir styrki til nýsköpunar í atvinnulífi á landsbyggðinni. Þar má m.a. nefna vöruþróun og markaðssetningu, könnun á nýjum atvinnukostum, afþreyingu í ferðaþjónustu, útflutningsverkefni og fleira af því tagi sem kallað hefur verið mjúkar fjárfestingar.

Meginreglan hefur verið sú að styrkja ekki fjárfestingar í húsnæði og vélum í hefðbundnum atvinnugreinum.

Byggðastofnun:  www.byggdastofnun.is


 

Iðntæknistofnun - Impra
Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi. Þjónustan er veitt öllum atvinnugreinum, hvort heldur er á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs.
Impra veitir alhliða upplýsingar um stuðning sjóða og hins opinbera við stofnun og rekstur fyrirtækja, meðhöndlun og framþróun nýrra hugmynda og möguleg tengsl við erlenda samstarfsaðila.

 

Impra nýsköpunarmiðstöð:  www.impra.is


 

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun/atvinnumál kvenna veitir styrki sem einkum er ætlað að auka fjölbreytni í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og efla atvinnutækifæri á landsbyggðinni, auðvelda aðgang kvenna að fjármagni og að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna.

Nánari upplýsingar: Vinnumálastofnun  www.vinnumalastofnun.is


 

Menning 2000

Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins

Á þessari heimasíðu er að finna upplýsingar um Menningu 2000 / Culture 2000 menningaráætlun Evrópusambandsins og upplýsingaþjónustu menningaráætlunar Evrópusambandsins, Cultural Contact Point á Íslandi.
Menningaráætlunin veitir styrki til verkefna í öllum listgreinum  og á sviði menningararfleifðar fyrir utan að styrkja starfsemi evrópskra tengslaneta og menningarstofnana.
www.evropumenning.is


NORRÆNIR SJÓÐIR

Norræni menningarsjóðurinn - Nordisk kulturfond 
Markmið sjóðsins er að stuðla að samstarfi milli minnst þriggja Norðurlanda. Starfsemi sjóðsins nær til menningar í almennum skilningi, lista, menntunar og rannsókna. Veittir eru styrkir til verkefna á sviði lista. Sjóðurinn styrkir aðallega menningarsamstarf á Norðurlöndum. Einnig eru veittir styrkir til samstarfsverkefna milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og Norð-vestur Rússlands eða milli Norðurlandanna og annarra Evrópulanda. Þó verða alltaf að minnsta kosti þrjú norræn lönd að taka þátt.
Umsóknir á rafrænu formi um allt að 100 000 DKK er hægt að senda inn til sjóðsins allt árið um kring nema í júní, júlí og desember. Umsækjandi má vænta svars eftir 6 -10 vikur. Umsóknir á fylla út á eyðublöð sjóðsins. Geti umsækjandi, sem sækir um allt af 100 000 DKK, ekki afhent umsókn á rafrænu formi skal hann sækja um fyrir 1. febrúar eða 1. september. Nánari upplýsingar má finna á vefnum:  
www.nordiskkulturfond.dk


 

Menningarsjóður Íslands og Finnlands

Markmið sjóðsins er að efla menningartengsl milli Finnlands og Íslands. Sjóðurinn veitir ferðastyrki og aðrir styrki, fyrst og fremst til einstaklinga, en í einstaka tilvikum einnig til samtaka eða stofnanna. Árleg fjárhæð sem úthlutað er, er um það bil 25.000 ? Um 25 styrkir eru veittir árlega. Þeir geta verið mismunandi háir frá 500 upp í 2000 ? Umsóknarfrestur er 28. febrúar ár hvert. Umsóknum skal skila á sérstöku eyðublaði sem nálgast má hjá ritara sjóðsins.

Heimasíða: www.hanaholmen.fi  


 

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn var stofnsettur árið 1995 af ríkisstjórnum Svíþjóðar og Íslands. Hlutverk sjóðsins er að efla sænsk-íslenskt samstarfs, gagnkvæm menningarskipti og upplýsingamiðlun um sænska og íslenska menningu og samfélag. Þetta er gert með því að veita styrki og stuðning við verkefni einstaklinga og samtaka á Íslandi og í Svíþjóð. Sjóðurinn styrkir fyrst og fremst verkefni sem tengjast menningu, menntun og rannsóknum, en getur einnig styrkt önnur verkefni sem miða að því að auka þekkingu eða tengsl milli landanna. Umsóknarfrestur: 1. febrúar Upplýsingar um sjóðinn og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins.

Heimasíða: www.norden.se/island.asp


 

Sjóður fyrir danskt-íslenskt samstarf

Í starfsreglum sjóðsins segir að hann skuli stuðla að skilningi og samstarfi milli Danmerkur og Íslands á menningarsviðinu og öðrum sviðum. Styrkir eru meðal annars veittir til starfs- og námsdvalar í Danmörku eða á Íslandi, til faglegrar menntunar, til leikhópa, listsýninga og annars sem miðar að því að vekja áhuga Íslendinga á Danmörku og Dana á Íslandi. Árlegt fjármagn til ráðstöfunar, eru vextir af höfuðstól sjóðsins um 300.000 danskar krónur. Flestir styrkir eru um 5.000 – 20.000 danskar krónur, en stærri styrkir eru einnig veittir til einstakra verkefna. Umsóknir eru metnar tvisvar á ári á stjórnarfundum í maí og nóvember. Umsóknarfrestir: 15. apríl og 15. október.

Heimasíða: www.fdis.dk


 

Ferðastyrkir til félagasamtaka á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. 

Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið veita ferðastyrki til frjálsra félagasamtaka á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum.   
Styrkurinn er veittur til fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem þurfa að sækja samnorrænar ráðstefnur, fundi eða samkomur til Norðurlandanna. Þátttakendur þurfa að vera frá minnst þremur norrænum löndum. 

Nánari upplýsingar á vef Norræna hússins. Þar má einnig finna upplýsingar um ýmsa aðra norræna og íslenska styrki til menningar- og menntamála. 


 

AÐRIR ERLENDIR SJÓÐIR

Haystack listastyrkur

Haystack Mountain School of Crafts heldur á hverju sumri námskeið fyrir listafólk hvaðanæva að úr heiminum.
Til að sækja um Haystack listastyrkinn þarf að leggja inn eftirfarandi gögn:

1. Útfyllta umsókn á ensku.
2. Prófskírteini úr því námi sem að umsækjandi hefur lagt stund á.
3. Meðmælabréf í lokuðu umslagi.
4. Sýnishorn af verkum umsækjanda, t.d. ljósmyndir.

Umsóknin er hér: Haystack-umsókn

Styrkurinn er kynntur á heimasíðu Íslensk - ameríska félagins www.iceam.is


 

European Cultural Found

Ýmsir styrkir sjá heimasíðuna www.eurocult.org

Smellið hér fyrir upplýsingar um ferðastyrkinn STEP beyond


 

Sjóður Clöru Lachmann

www.claralachmann.org 


 

Kulturkontakt Nord

www.kknord.org