|
HANDVERK OG HÖNNUN hefur staðið fyrir sýningum Á skörinni frá júní byrjun 2007 eða frá því að starfsemin flutti í Aðalstræti 10. Á þessum tíma hafa 38 einstaklingar sýnt mjög fjölbreytt og forvitnileg verk. Allar þessar sýningarnar eru skráðar á heimasíðu HANDVERKS OG HÖNNUNAR og þar er líka hægt að skoða ljósmyndir af þessu skemmtilega rými. Sjá hér
Nú er komið að því að auglýsa eftir umsækjendum fyrir 2010. Þeir sem áhuga hafa á að sýna Á skörinni eru vinsamlegast beðnir að senda inn vandaða lýsingu og /eða myndir af því sem þeir hafa áhuga á að sýna sem fyrst en í síðasta lagi 2. febrúar 2010.
Leitað er að íslensku handverki, listiðnaði og nútíma hönnun. Lögð verður áhersla á að þessar sýningar séu bæði nýstárlegar, fjölbreyttar og spennandi.
Umsóknir sendist til HANDVERKS OG HÖNNUNAR, pósthólf 1556, 121 Reykjavík eða í sunneva@handverkoghonnun.is
Þeir sem sóttu um í fyrra en komust að ekki að verða að senda inn nýja umsókn.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu HANDVERKS OG HÖNNUNARsem er opin alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00.
|