laugardaginn 16. janúar 2010 hefst kl. 15:00

Senda atburðEndalokin - Ragnar Kjartansson

Verk Ragnars Kjartanssonar, The End eða Endalokin, sem var framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins 2009 verður sýnt í Hafnarborg í janúar - febrúar 2010. Sýningunni lauk síðastliðin nóvember og vakti mikla athygli. Ragnar er kunnur fyrir fjölbreytt verk sín sem eiga rætur að rekja í ólíka miðla, m.a. leikhús, tónlist, málverk og gjörninga. Auk þess að miðla í myndlist sinni rómantísku lífsviðhorfi á einlægan máta, nýtir Ragnar sér gjarnan markviss form og þaulhugsaða tækni til að tendra samband listamanns, verks og áhorfenda. Þannig má segja að hann vegi salt á milli hins háfleyga málara Caspar David Friedrichs og tvíeykisins Gilberts og George sem sækja öllum stundum í hversdagsleikann. Framkvæmdastjóri verkefnisins var Christian Schoen forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og sýningarstjórar eru Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch.
Sjá vefslóð: http://www.hafnarborg.is
...til baka