IIDEM er samstarf Helgu Ragnhildar Mogensen skartgripahönnuðar og Kolbrúnar Ýrar Gunnarsdóttur fata- og skartgripahönnuðar.
IIDEM er silfurskart handsmíðað af hönnuðunum sjálfum og samanstendur línan af hringjum, hálsmenum, armböndum og eyrnalokkum. Hönnunin er stílhrein, fögur og tímalaus.
IIDEM býður upp á fría heimsendingu núna meðan á samkomubanni stendur.