Ólafur Elíasson myndlistarmaður fjallar um samstarf sitt við Einar Þorstein Ásgeirsson (1942 – 2015) arkitekt og stærðfræðing en þeir störfuðu náið saman í um tólf ár meðal annars að glerhjúpnum utan um tónlistarhúsið Hörpu. Undanfarna mánuði hefur Hönnunarsafn Íslands staðið fyrir opinni skráningu á innvolsi vinnustofu Einars Þorsteins sem hann afhenti safninu stuttu fyrir andlát sitt.
Aðgangseyrir að safninu gildir kr. 1000.