Þórdís Jónsdóttir notar blómstursaum í fallega púða og myndir. Þetta er útsaumsaðferð sem var notaður til að skreyta pils svuntu og samfellu íslenskra faldbúninga.
Philippe Ricart vefur létt og falleg sjöl, teppi og hálsklúta með vaðmálsvefnaði og notar eingöngu íslenska ull. Vaðmálsvefnaður og prjónles úr íslenskri ull var mikilvæg útflutningsafurð Íslendinga fyrr á öldum.
Ýr Jóhannsdóttir skreytir notaðar peysur með útsaumi og handprjóni og flíkurnar fá nýtt útlit og nýtt líf. Endurvinnsla af bestu gerð.
Hægt að skoða sýnendurna nánar:
Sýningin er opin alla daga 11-17 mun standa til 7. júní 2020