OPIÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í HÖNNUNARMARS 2019
HönnunarMars fer fram í ellefta sinn dagana 28.– 31. mars 2019. Opnað hefur verið fyrir skráningar en hægt er að sækja um í tveimur hlutum:
Umsóknarferli I : Opið frá 25. september og til og með 25. nóvember 2018.
Umsóknarferli II : Opið frá 26. nóvember og til og með 25. janúar 2019.
Valnefnd fer yfir innsendar umsóknir en þau verkefni sem sækja um fyrir 25. nóvember eiga möguleika á því að vera með í forkynningardagskrá sem gefin verður út í undanfara HönnunarMars, þar sem verkefni og sýningarstaðir sem hafa skráð sig snemma til leiks eru kynnt sérstaklega.
Sendu inn hugmynd að sýningu/viðburði í gegnum umsóknarferli HönnunarMars með því að smella hér!