Pétur Ármannsson arkitekt og Þóra Sigurbjörnsdóttir sérfræðingur safnsins sjá um leiðsögn og spjall á sýningunni Safnið á röngunni með Einari Þorsteini. Undanfarnar vikur hefur Þóra leitt skráningu á verkum Einars Þorsteins á Hönnunarsafni Íslands fyrir opnum tjöldum.
Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, samtals um 1500 munir. Einar Þorsteinn var brautryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni, samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980. Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu.
Sjá nánar http://honnunarsafn.is/is/syning/safnið-á-röngunni-með-einari-þorsteini
Árið 2014 færði arkitektinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942–2015) Hönnunarsafni Íslands allt innvols vinnustofu sinnar að gjöf. Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, samtals um 1500 munir. Einar Þorsteinn var brautryðjandi í rúmfræðirannsóknum og sérfræðingur í margflötungum. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni, samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980. Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu.
Næstu mánuði mun starfsfólk Hönnunarsafns Íslands ásamt ýmsum góðum gestum skrásetja þessa muni í sýningarsal safnsins. Skráning er viðamikill hluti af starfsemi safna. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmyndaðir, skráðir í safnmunaskrá og loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Markmiðið er að hluturinn varðveitist en sé um leið aðgengilegur ásamt þeim upplýsingum sem til eru um hann. Því miður er reglugerðum um myndbirtingu verka þannig háttað á Íslandi að mörg söfn sjá sér ekki fært að veita almenningi aðgang að myndefni í safnaskrám. Við vonum að þetta eigi eftir að breytast og að einn góðan veðurdag fái allir lykla að þessari fjársjóðskistu safnanna.
Skráning er spennandi ferli sem víkkar sjóndeildarhringinn, kveikir neista og tengingar, hugmyndir, samtöl og minningar.
Sýningin stendur til 7. október 2018