Á markaðnum verður kynnt haust og vetrarlínan 2019 auk þess sem á boðstólum verða einnig eldri vörur úr smiðju Eyglóar á sérstöku tilboði. Eygló hefur hannað undir sínu nafni frá því hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2005 en hún rak verslunina Kiosk ásamt fleiri fatahönnuðum árin 2010-2019. Eygló er þekkt fyrir vönduð klassísk föt þar sem húmorinn er aldrei langt undan. Að þessu sinni er innblásturinn kristin trú.
Eygló hlaut viðurkenninguna Fashion Design of the Year 2016 frá Grapevine og Hönnunarmiðstöð Íslands.