Útskriftarsýning meistaranema LHÍ

Sunnudaginn 21. maí kl 15 verða meistaranemar í hönnun með listamannaspjall í tengslum við útskriftarsýningu sem nú stendur yfir á Gerðarsafni. Aðgangur er ókeypis.

Alþjóðlegt meistaranám í myndlist og hönnun hófst í Listaháskóla Íslands haustið 2012 og er þetta fjórði árgangur meistaranema sem sýnir útskriftarverkefni sín í Gerðarsafni. Á sýningunni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistarastigi þar sem fimm hönnuðir og fimm myndlistarmenn hafa fengið tækifæri til að þróa og styrkja rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum undir leiðsögn framúrskarandi hönnuða og myndlistarmanna. Áhersla er lögð á skapandi og greinandi hugsun sem nýtist við framsækin verkefni á sviðum hönnunar og myndlistar á Íslandi.  

Í MA námi í myndlist er nemendum skapaður vettvangur til að dýpka og auka þekkingu sína á sviði samtímamyndlistar, styrkja persónulega sýn og tengja listsköpun sína við fræðilegar forsendur fagsins. Í MA námi í hönnun er sjónum beint að aðkallandi viðfangsefnum í samtímanum og nemendur hvattir til að beita ímyndunarafli, innsæi, gagnrýnni og greinandi hugsun til þess að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og þær samfélagsbreytingar sem við okkur blasa.

Sýningin stendur frá 6. - 21. maí 2017

Viðburður á facebook