Velkomin í Ráðhús Reykjavíkur

Í dag var opnuð sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er stór sýning og kynning á handverki, hönnun og listiðnaði. 

Fjölbreytnin ræður ríkjum á sýningunni og er gróskan mikil í íslensku handverki, hönnun og listiðnaði. Meðal þess sem hægt verður að skoða eru munir úr horni og beini, skartgripir, barnaföt, leir- og trémunir, leðurvörur, skór og fatnaður.

Að auki verður sérstök kynning á Fræðasetri um forystufé, Hússtjórnarskólanum í Reykjavík og Heimilisiðnaðarfélagi Íslands.

Upplýsingar um alla þátttakendur á sýningunni í maí má finna hér.
Þessi sýning hefur verið afar vinsæl frá upphafi en hún var fyrst haldin árið 2006 enda er þetta einstakt tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á einum stað.

Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem kynna vörur sínar á sýningunni.

Opnunartíminn:
Fimmtudagur 4. maí kl. 12-19
Föstudagur 5. maí kl. 12-19
Laugardagur 6. maí kl. 12-19 
Sunnudagur 7. maí kl. 12-18

Viðburður á Facebook