- 8 stk.
- 10.11.2017
Þann 31. maí 2007 opnaði fyrsta sýningin „Á skörinni“ hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Þar sýndi Sigríður Ágústsdóttir leirlistakona handmótaða og reykbrennda vasa.
Sigríður stundaði listnám í École d’Art et d’Architecture í Marseille í Frakklandi og í Cambridgeshire College of Art and Technology, Cambridge, Englandi á áttunda áratugnum. Sigríður hefur sl. átta ár verið búsett á Akureyri þar sem hún rekur vinnustofu í Listagilinu ásamt öðrum myndlistarmönnum og kennir jafnframt leirmótun í grunnskólum Akureyrar og á dagdeild Fjórðungs-sjúkrahúss Akureyrar. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum.