H A N D V E R K
O G H Ö N N U N
í Ráðhúsi Reykjavíkur
07.-11. nóvember 2024
Umsóknarfrestur rennur út 20. september 2024
HANDVERK OG HÖNNUN heldur sýningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2023.
Sýningin stendur í fimm daga og er aðgangur ókeypis.
Opnunartími:
Fimmtudagur 07. nóvember kl. 16-19
Föstudagur 08. nóvember kl. 12-18
Laugardagur 09. nóember kl. 12-18
Sunnudagur 10. nóvember kl. 12-18
Mánudagur 11. nóvember kl. 12-18
Upplýsingar:
- Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um þátttöku á sýningunni.
- Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur og er ný valnefnd er skipuð fyrir hverja sýningu.
- Mikilvægt er að sýningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar þátttakendur eru valdir.
- Mikilvægt er að þeir sem hafa oft tekið þátt í sýningunni láti vita ef þeir ætla að kynna nýjar vörur.
- Mikilvægt er að allir sem áhuga hafa á þátttöku geri ráð fyrir að vera sem mest á staðnum sjálfir. Eitt af markmiðum þessarar sýningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina.
Kostnaður:
Þátttökugjald vegna sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2023 er kr. 98.000 fyrir hverja einingu með borði en kr. 85.000 án borðs.
Innifalið í þátttökugjaldinu er:
- Kynningaraðstaða í Ráðhúsi Reykjavíkur í 5 daga, nafnamerking, veggir og lýsing. Barmmerki fyrir sýnendur og aðstoðarfólk.
- Rafrænn bæklingur (sambærilegur við bæklingana 2019 og 2022)
- Kynning á heimasíðu með myndum. Heimasíðan verður áfram opin að sýningunni lokinni.
- Umfangsmikil kynning á sýningunni.
- Ýmis önnur þjónusta við þátttakendur.
______________________________________________________________________
Niðurstaða valnefndar mun liggja fyrir í lok september 2024.