Fréttir

Jólaopnun Íshúss Hafnarfjarðar

Gullsmiður, keramik hönnuðir, rithöfundur, myndskreytar, arkitekt, tónskáld, grafískir hönnuðir, myndlistarfólk, bátasmiðir og fleira og fleira í Íshúsinu. Opið laugardaginn 26. nóvember milli 13 & 17

Jólasýning Margrétar og Kristínar, Unnarbraut 20

Hin árlega jólasýning Kristínar Gunnlaugsdóttur og Margrétar Jónsdóttur verður opin á Unnarbraut 20, Seltjarnarnesi, fyrstu helgina í aðventu.

Opnun sýninga Listasafns Reykjanesbæjar og afhending menningarverðlauna

Verið velkomin á opnun tveggja sýninga, Línur, flækjur og allskonar, einkasýningu Guðrúnar Gunnarsdóttur og You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér, sýningu Vena Naskręcka / Michael Richardt, í Listasafni Reykjanesbæjar, laugardaginn 26. nóvember kl. 14:00.

AÐVENTAN Í NORRÆNA HÚSINU: Hringrásarjól

Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins sunnudaginn 27. nóv. kl. 13-15

Jólamarkaðurinn í Heiðmörk opnar um helgina

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir Jólamarkaði í Heiðmörk allar aðventuhelgar kl. 12-17

Bubblur & aðventugleði í KIOSK

Kiosk býður í bubblur og konfekt, fyrstu helgi í aðventu, laugardaginn 26. nóvember frá 15-17.

Jólasýning Grósku á Garðatorgi í Garðabæ

Jólasýning Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ, verður opnuð á Aðventuhátíð Garðabæjar á Garðatorgi laugardaginn 26. nóvember kl. 13-16

Jólaopnun á vinnustofu Bjarna Sigurðssonar keramikers

Jólaopnun á vinnustofu Bjarna Sigurðssonar keramikers dagana 25. til 27. nóv. n.k. að Hrauntungu 20, Hafnarfirði.

Leir á loftinu

Síðasta sýningarhelgi! Samsýning meðlima Leirlistafélags Íslands á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum frá 12. - 27. nóvember 2022.

Velkomin á HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsi Reykjavíkur

Loksins eftir tveggja ára covid hlé mun stór sýning á á handverki, hönnun og listiðnaði opna í Ráðhúsi Reykjavíkur í tuttugasta sinn.