01. nóvember, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem fer fram dagana 7-11 nóvember munu tveir listamenn sýna lifandi handverk sitt. Þessir sérstöku pop-up viðburðir munu fara fram laugardaginn 9. nóv og sunnudaginn 10. nóv. Á viðburðunum munu listamenn vera að vinna að sínu handverki og hönnun og sýna gestum sýningarinnar sérhæft handbragð og verklag sitt.
23. október, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Sýningin HANDVERK OG HÖNNUN í ráðhúsi Reykjavíkur hefur verið haldin árlega í 21 ár og þann 7.-11. nóvember næstkomandi fer hún fram í 22. sinn. Árlega sækja þúsundir manns sýninguna og hefur viðburðurinn fest sig í sessi sem fyrsta skref í undirbúningi jóla.
03. október, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Síðustu dagar sýningarinnar RÆTUR standa nú yfir í sýningarrými Handverks og hönnunar á Eiðistorgi 15. Fríða S. Kristinsdóttir sýnir þrívíð verk úr textíl, vefnaði og blandaðri tækni. Loka dag sýningar, laugardaginn 5. október kl. 14.00, mun listamaðurinn vera með leiðsögn um sýninguna, allir velkomnir.
Mótökur sýningarinnar hafa verið framúrskarandi og hvetjum við alla til láta ekki þessa sýningu framhjá sér fara.
Opið er fimmtudag (3. okt), föstudag (4. okt) og laugardag (5. okt- loka dagur) frá kl 11-17
03. október, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Kæru umsækjendur á Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur 2024
Vegna framlengingu á umsóknarfresti til 20. sept munu svör við umsóknum seinka um eina viku til að tryggja faglega yfirerð og afgreiðslu umsókna. Búast má við svörum í næstu viku (6-12 okt). Við biðjumst velvirðingar á seinkuninni.
Í kjölfar svarbréfa mun sýnendum vera boðið á kynningarfund fyrir sýninguna.
Ef frekari spurningar koma upp varðandi ferlið má hafa beint samband við framkvæmdastóra Handverk og hönnun á netfangið edda@handverkoghonnun.is
23. september, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
,,Vefur, vefstaður, vefstóll, að vefa hefur verið mér hugleikið í nokkra áratugi. Ég er alin upp við mikilvægi handverks og hef búið til í höndunum frá unga aldri. Á þessari sýningu fer ég yfir farinn veg. Öll verkin eru unnin á árunum 1993 – 2005. Flest verkanna eru unnin með tvöföldum vefnaði, svokölluðum pokavef, en líka með blandaðri tækni. Verkin eru unnin úr hör, koparvír, tinhúðuðum vír, pappírsþræði, handgerðum pappír, kozo, fiskroði, gömlum sendibréfum og fleiri efnum. " - Fríða S. Kristinsdóttir
11. september, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
HANDVERK OG HÖNNUN
í Ráðhúsi Reykjavíkur 2024
Umsóknarfrestur framlengdur til 20.september
19. ágúst, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Á þessu ári fagnar Textílfélagið 50 ára afmæli með veglegri sýningu á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum. Þátttakendur á sýningunni eru 57 sem er um helmingur félaga og sýnd verða yfir 100 verk.
16. ágúst, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Sýningin HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsi Reykjavíkur verður haldin 07.22.24 -11.11.24 og þá í 21 sinn en hún var fyrst haldin í Ráðhúsinu árið 2006. Gróskan er mikil í íslensku handverki, hönnun og listiðnaði og fjölbreytnin mikil. Sýningin hefur verið mjög vinsæl frá upphafi og dregið að sér þúsundir gesta.
14. ágúst, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Grasrótarhandverk 29. ágúst kl 18. Skráðu þig hér! Á þessum viðburði tökum við umræðu um þarfir einstaklinga fyrstu árin eftir útskrift og hvernig Handverk og Hönnun getur nýtt sína stöðu til þess að hjálpa þeim að þróa þeirra listsköpun og starfsferil.
12. júní, 2024
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Svipmyndir af listhandverki, heimsókn á Hjalteyri, prjónahátíð á Blönduósi og annarri dásemd.